Vöruafhending

AFHENDING VÖRU

Þegar verslað er á heimasíðu Sóma ehf er hægt að velja á milli þess að sækja vöruna í Gilsbúð 9, Garðabæ eða að fá hana heimsenda. Boðið er uppá fría heimsendingu í heimahús og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu þegar keypt er fyrir 16.000 kr eða meira annars er 1.550kr sendingargjald.

Á virkum dögum eru sendingar keyrðar út á milli 7:00 og 16:00 en á laugardögum er keyrt út á milli 7:00 og 12:00.

Nýr valkostur hjá okkur í sendingum er Pikkoló kæligeymsla

Við erum komin í samstarf við Pikkoló. Pikkoló er viðbótarkostur í heimsendingum og bíður uppá meiri sveigjanleika til að sækja vörurnar en hægt er að nálgast þær í kæligeymslu á starfstöðvum Pikkoló allan sólarhringinn. Afhendingastöðvar Pikkoló eru Pikkoló Vatnsmýri, Pikkoló Breiddin & Pikkoló Hlemmur- þú færð sendan QR kóða í símann þinn þegar sendingin er komin í kælihólfið þitt, eigi síðar en klukkan 9:30 á afhendingardegi. Þú sækir þegar þér hentar. Sendingargjald í Pikkoló er 500 krónur en sendingargjald fellur niður ef keypt er fyrir 16.000 kr eða meira. Einfalt & þægilegt

Sómi ehf er með opið á milli 8:00 og 16:00 á virkum dögum og á milli 8:00 og 12:00 á laugardögum. Pantanir verða að vera sóttar á opnunartíma. Lokað er á sunnudögum.

Allar pantanir eða afpantanir þurfa að berast Sóma ehf fyrir klukkan 15:00 síðasta virka dag fyrir afhendingu, sé verið að panta fyrir mánudag þarf pöntun að berast fyrir 15:00 föstudaginn á undan.

FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO